1. gr.
1. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Við hrognkelsaveiðar er skylt að koma með öll hrognkelsi að landi, þó er heimilt að sleppa lífvænlegum rauðmaga.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, til að öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. mars 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.
|