1. gr.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er heimilt að ákvarða og innheimta gjald fyrir söfnun og meðhöndlun úrgangs, samkvæmt 16. gr. samþykktar nr. 1033/2023 um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, í samræmi við ákvæði 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Þá er Ísafjarðarbæ heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna.
2. gr.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að innheimt verði árgjald fyrir hvert ílát á heimili í samræmi við eftirfarandi gjaldskrá:
Gjöld vegna sorpíláta |
Ílát sem eru ≤ 10 m frá hirðubíl |
Ílát sem eru > 10 m frá hirðubíl |
Sorpílát með innra hólfi |
Blandaður úrgangur með innra hólfi fyrir lífrænan úrgang, 240 l |
28.270 kr. |
42.405 kr. |
Pappír með innra hólfi fyrir plast, 240 l |
18.810 kr. |
28.215 kr. |
Sorpílát fyrir blandaðan úrgang |
Blandaður úrgangur, 120 l |
25.740 kr. |
38.610 kr. |
Blandaður úrgangur, 240 l |
36.850 kr. |
55.275 kr. |
Blandaður úrgangur, 360 l |
55.275 kr. |
82.913 kr. |
Blandaður úrgangur, 660 l |
101.200 kr. |
151.800 kr. |
Blandaður úrgangur, 1.100 l |
168.520 kr. |
252.780 kr. |
Sorpílát fyrir lífúrgang |
Lífúrgangur, 120 l |
14.190 kr. |
21.285 kr. |
Lífúrgangur, 240 l |
28.270 kr. |
42.405 kr. |
Sorpílát fyrir pappír |
Pappír, 120 l |
13.200 kr. |
19.800 kr. |
Pappír, 240 l |
18.810 kr. |
28.215 kr. |
Pappír, 360 l |
28.215 kr. |
42.323 kr. |
Pappír, 660 l |
51.920 kr. |
77.880 kr. |
Pappír, 1.100 l |
86.460 kr. |
129.690 kr. |
Sorpílát fyrir plast |
Plast, 120 l |
13.200 kr. |
19.800 kr. |
Plast, 240 l |
18.810 kr. |
28.215 kr. |
|
|
Önnur gjöld |
Kostnaður vegna breytinga á ílátum |
4.000 kr. |
Endurnýjunargjald tunnu 240 l með flutningi á staðfang |
Samkvæmt gjaldskrá verktaka |
Auka hirðing |
8.030 kr. |
Auk þess hefur bæjarstjórn ákveðið að fast gjald fyrir rekstur grenndar- og söfnunarstöðva og annan fastan kostnað verði 39.820 kr. fyrir heimili og 19.910 kr. fyrir sumarbústaði og íbúðarhúsnæði með ákvæði um takmörkun á íveru vegna snjóflóðahættu.
Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignagjöldum.
3. gr.
Móttöku- og urðunargjald rekstraraðila á endurvinnslustöð:
a. |
Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, heyrúlluplast, ýmis spilliefni og úrelt ökutæki. |
b. |
Íbúar Ísafjarðarbæjar þurfa ekki að greiða móttökugjald fyrir garðaúrgang. |
c. |
Gjald fyrir móttöku í endurvinnslustöð í Ísafjarðarbæ er: |
|
Blandaður/grófur úrgangur |
40 kr./kg |
|
Timbur |
60 kr./kg |
4. gr.
Gjaldskrá þessi sem er samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, staðfestist samkvæmt heimild 16. gr. samþykktar um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, skv. lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2025. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1474/2023.
Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 3. október 2024.
Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.
|