1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/612 frá 17. mars 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 307/2012 að því er varðar tilteknar málsmeðferðarreglur við mat Sambandsins á öryggi efna eða efnahópa sem eru í athugun. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 562.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, og öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 4. desember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
|