1. gr.
Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi ný 3. mgr: Þrátt fyrir ákvæði í viðauka um útgáfu Flugmálahandbókar á pappír er heimilt að gefa handbókina út á rafrænu formi eingöngu, enda sé kröfum um útgáfuna að öðru leyti fylgt.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 57. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 2. júní 2017.
Jón Gunnarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|