Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 373/2021

Nr. 373/2021 6. apríl 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla.

1. gr.

Við 5. gr. reglugerðar nr. 858/2014 bætast eftirfarandi liðir:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1477 frá 14. október 2020 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 95/93 að því er varðar tímabundna framlengingu á sérstökum neyðarráðstöfunum til að bregðast við afleiðingum COVID-19 heimsfaraldursins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2020, frá 30. október 2020, eins og hún birtist í EES-viðbæti nr. 19, 2021, bls. 38.
  2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/250 frá 16. febrúar 2021 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 95/93 að því er varðar tímabundna tilslökun á reglum um nýtingu afgreiðslutíma á flugvöllum í Sam­band­inu vegna COVID-19 heimsfaraldursins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2021, frá 3. mars 2021.

 

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/250, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgi­skjal við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. mgr. 57. gr. c, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 6. apríl 2021.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 8. apríl 2021