1. gr.
14. gr. samþykktarinnar orðast svo:
Heimilt er að nota fjarfundarbúnað á fundum sveitarstjórnar og nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins ef aðstæður mæla með því að slíkur búnaður sé notaður. Skal sveitarstjórn, ráð eða nefnd bóka í upphafi fundar hverjar aðstæður sem mæla með notkun fjarfundarbúnaðarins eru.
Tryggja skal jafna möguleika allra fundarmanna til þátttöku í fundinum. Fundarmaður skal alla jafna vera sýnilegur öðrum fundarmönnum á meðan á fundi stendur.
Um framkvæmd fjarfunda gildir auglýsing ráðherra, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
2. gr.
5. töluliður B-liðar 48. gr. samþykktarinnar orðast svo:
Öldungaráð Dalabyggðar, Reykhóla og Strandabyggðar. Sveitarstjórn skipar einn fulltrúa og einn til vara.
3. gr.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Dalabyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 20. desember 2021.
F. h. innviðaráðherra,
Guðni Geir Einarsson.
|