Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 159/2025

Nr. 159/2025 29. janúar 2025

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

 

3.75 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/3182 frá 16. desember 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.75.

 

4.83 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/3189 frá 16. desember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.83.

 

7.38 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/3187 frá 16. desember 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.38.

 

8.30 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/3192 frá 16. desember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.30.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2025.

 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
utanríkisráðherra.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

 


B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2025