Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 937/2022

Nr. 937/2022 24. júní 2022

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 234/2020 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 um opinbert eftirlit og aðra opinbera starfsemi með matvælum, fóðri o.fl.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/630 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar tiltekna flokka vara sem eru undanþegnir opinberu eftirliti á landamæraeftirlitsstöðvum og um breytingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2007/275/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 22.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1353 frá 17. maí 2021 um við­bætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar í hvaða til­vikum og við hvaða skilyrði lögbærum yfirvöldum er heimilt að tilnefna opinberar rann­sóknar­stofur sem uppfylla ekki skilyrði í tengslum við allar aðferðir sem þær nota við opinbert eftirlit eða aðra opinbera starfsemi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 241.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 24. júní 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 17. ágúst 2022