1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
|
a. |
Fyrirsögn 1. mgr. vegna Skagafjarðar (breyting á almennum skilyrðum, vinnsluskylda) breytist og verður: Skagafjörður (breyting á almennum skilyrðum, löndunarskylda innan sveitarfélags, niðurfelling vinnsluskyldu). |
|
b. |
Ákvæði d-liðar 1. mgr. vegna Skagafjarðar breytist og verður svohljóðandi: |
|
|
d) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2023 til og með 18. ágúst 2024. |
|
c. |
Tveir nýir liðir svohljóðandi bætast við: |
|
|
e) |
Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður. |
|
|
f) |
Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu. |
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi og falla ákvæði hennar úr gildi 19. ágúst 2024.
Matvælaráðuneytinu, 31. júlí 2024.
F. h. r.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
|