1. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæði og bókun 1 við EES-samninginn:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/438 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/95/EB að því er varðar skyldur vörsluaðila með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018 frá 23. mars 2018 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 49. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 42 frá 25. júní 2020, bls. 64-83.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1619 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/438 að því er varðar varðveisluskyldur vörsluaðila með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 307/2019 frá 13. desember 2019 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 66. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 42 frá 25. júní 2020, bls. 122-125.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 15., 43., 45.-47., 49.-51. og 1. mgr. 134. gr. laga nr. 116/2021, um verðbréfasjóði, öðlast gildi 1. september 2021.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. ágúst 2021.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
|