Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1392/2022

Nr. 1392/2022 12. desember 2022

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1200/2022 um loðnuveiðar íslenskra skipa á vetrarvertíð 2022/2023.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðist svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar er einnig heimilt til 23. desember 2022 að stunda veiðar á loðnu með flotvörpu á svæði sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 67°11´ N - 14°30´ V
  2. 67°20´ N - 18°00´ V
  3. 68°00´ N - 18°00´ V
  4. 68°00´ N - 14°30´ V

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 8. gr., 9. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu þann 12. desember 2022 og gildir til 23. desember 2022.

 

Matvælaráðuneytinu,12. desember2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 12. desember 2022