Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1237/2023

Nr. 1237/2023 14. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1698 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar kröfur um málsmeðferð er varða viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum sem eru til þess bær að annast eftirlit með lífrænt vottuðum rekstraraðilum og hópum rekstraraðila og með lífrænt ræktuðum vörum í þriðju löndum og að því er varðar reglur um eftirlit með þeim og eftirlit og aðrar aðgerðir sem þessi eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðilar eiga að annast.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftir­talin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1698 frá 13. júlí 2021 um við­bætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar kröfur um málsmeðferð er varða viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum sem eru til þess bær að annast eftirlit með lífrænt vottuðum rekstraraðilum og hópum rekstraraðila og með lífrænt ræktuðum vörum í þriðju löndum og að því er varðar reglur um eftirlit með þeim og eftirlit og aðrar aðgerðir sem þessi eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðilar eiga að annast. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 39/2022, frá 4. febrúar 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 18, frá 17. mars 2022, bls. 758.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 23. nóvember 2023