1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 14. tl., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1333 frá 17. maí 2024 um breytingu og leiðréttingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu lifandi fisks, lifandi krabbadýra og afurða úr þessum dýrum og tiltekinna lagarafurða, sem eru ætluð til manneldis, inn í Sambandið.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/1333 sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 20/2024.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 28. maí 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
|