1. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. október 2020“ í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2020.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðinu „lækni“ í 1. máls. 1. mgr. kemur: eða sjúkraþjálfara á heilsugæslustöð.
- 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Orðin „sbr. þó undantekningu í 1. mgr.“ í 2. mgr. falla brott.
3. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. október 2020“ í 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2020.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 21. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 30. október 2020.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
|