1. gr.
Á eftir 5. gr. reglugerðarinnar koma tvær nýjar greinar svohljóðandi:
5. gr. a
Útnefning Veðurstofu Íslands sem eldfjallaeftirlitsstöð.
Samgöngustofa útnefnir Veðurstofu Íslands sem eldfjallaeftirlitsstöð fyrir virk eldfjöll á Íslandi.
5. gr. b
Útgáfa flugkorta.
Eingöngu skal gefa út flugkort til birtingar í Flugmálahandbók Íslands fyrir flugvelli sem starfa á grundvelli starfsleyfis Samgöngustofu samkvæmt reglugerð um flugvelli.
Samgöngustofa skal tilgreina hvaða flugkort skal gefa út á Íslandi.
2. gr.
Innleiðing.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætast nýjar málsgreinar svohljóðandi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/469 frá 14. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 923/2012, reglugerð (ESB) nr. 139/2014 og reglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar kröfur um rekstrarstjórnun flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu, hönnun loftrýmisskipulags og gæði gagna, öryggi á flugbrautum og niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 73/2010, samanber ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 21. september 2023, bls. 82-324.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1177 frá 7. ágúst 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/469 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn, samanber ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1031-1032.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/665 frá 22. apríl 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar kröfur fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar í U-rýmis loftrými sem tilgreint hefur verið innan flugstjórnarrýmis, samanber ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 966-968.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1338 frá 11. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar kröfur um skýrslugjöf og leiðir til skýrslugjafar á milli stofnana eða fyrirtækja, og kröfur um veðurþjónustu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 137/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1128-1168.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnra (ESB) 2024/403 frá 30. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því varðar skilgreiningu á SIGMET-skeyti og tilteknar kröfur í tengslum við sérlegt sjónflug og flugheimildir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2024 frá 25. október 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 601-603.
3. gr.
7. gr. reglugerðarinnar breytist og orðast svo:
Viðurlög.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 253. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 772/2010 um upplýsingaþjónustu flugmála, reglugerð nr. 773/2010 um flugkort og reglugerð nr. 787/2010 um flugumferðarþjónustu.
Innviðaráðuneytinu, 3. janúar 2025.
F. h. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra,
Árni Freyr Stefánsson.
|