1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, töluliður 7, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/229 frá 7. janúar 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Búrkína Fasó, Cayman-eyjum, Haítí, Jórdaníu, Malí, Marokkó, Filippseyjum, Senegal og Suður-Súdan í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018 og fjarlægja Bahamaeyjar, Botsvana, Gana, Írak og Máritíus úr töflunni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, 21. apríl 2022, bls. 345.
2. gr.
Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal við reglugerð þessa þannig breyttur.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 14. júní 2022.
Jón Gunnarsson.
Haukur Guðmundsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|