Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1300/2024

Nr. 1300/2024 4. nóvember 2024

REGLUGERÐ
um (20.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr töluliður, 64. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2246 frá 15. nóvember 2022 um breyt­ingu á VIII. og IX. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 að því er varðar riðuveiki í lifandi hjartardýrum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 299/2023 frá 13. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 19. september 2024, bls. 174.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995 og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2024