Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1041/2019

Nr. 1041/2019 14. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr tölul., 33, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/618 frá 15. apríl 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/618 frá 15. apríl 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flug­rekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, sam­kvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2019 frá 27. september 2019. Fram­kvæmdar­reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 86, frá 24. október 2019, bls. 441-459.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2019