1. gr. 2. málsliður b. liðar 1. gr. verður svohljóðandi: Frá og með 15. september 2014 þurfa a.m.k. 10 rannsóknastig (aflstig) að meðaltali á ári, á síðustu 3-5 árum, að vera úr neðangreindum flokkum matskerfis opinberra háskóla: 2. gr. 1. og 2. málsliður c. liðar 3. gr. verða svohljóðandi: Sé ekki hægt að verða við öllum gildum umsóknum um rannsóknamisseri er umsóknum raðað eftir fjölda rannsóknastiga sem umsækjendur hafa aflað sér. Rannsóknastig eru talin frá þeim tíma er stigatalningu lauk vegna síðasta rannsóknamisseris viðkomandi, eða frá þeim tíma sem hann hóf störf, að hámarki 10 ár aftur í tímann. 3. gr. Reglur þessar sem samþykktar voru af háskólaráði 29. apríl 2013 eru settar á grundvelli 20. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009 og öðlast þegar gildi. Háskólanum á Akureyri, 20. júní 2013. Stefán B. Sigurðsson rektor. Sigurður Kristinsson, varaforseti háskólaráðs. |