Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 102/2023

Nr. 102/2023 10. janúar 2023

GJALDSKRÁ
fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar er heimilt, í samræmi við 7. gr. samþykktar nr. 171/1995 um sorp­hirðu í Dalabyggð, að leggja á sérstakt gjald vegna hirðingar og eyðingar sorps (sorpgjald) í Dala­byggð.

 

2. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að sorpgjald á hvert heimili í sveitarfélaginu og einbýlishús í þéttbýli á árinu 2023 verði kr. 72.815 og sorpgjald á hvert frístundahús og einbýlishús í dreifbýli þar sem ekki er heimili verði kr. 32.986.

Íbúar geta óskað eftir að fá fleiri sorpílát að heimilum sínum og greiða þá fyrir sorpílát fyrir almennan úrgang 36.264 kr. og fyrir sorpílát fyrir endurvinnsluúrgang 30.046 kr.

Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignagjöldum.

 

3. gr.

Gjaldskrá söfnunarstöðvar í Búðardal hefur verið með eftirfarandi hætti frá 1. apríl 2021, virðisaukaskattur innifalinn:

Dalabyggð gefur út klippikort vegna gjaldheimtu á þjónustu söfnunarstöðvar. Allir eigendur fasteigna sem greiða sorphirðugjöld fá klippikort sem gildir í ár fyrir allt að 4,0 m³ af úrgangi til þeirra sem greiða sorphirðugjald vegna heimila og einbýlishúsa í þéttbýli og fyrir allt að 2,0 m³ af úrgangi til þeirra sem greiða sorphirðugjald vegna frístundahúsa og einbýlishúsa í dreifbýli. Ef kortið dugir ekki út árið má kaupa nýtt. Aukakort verða seld á gámastöðinni og sér skrifstofa sveitar­félagsins um að senda reikning vegna þeirra. Verð á aukakortum er 18.720 kr. fyrir hvert 4,0 m³ kort og 9.360 kr. fyrir hvert 2,0 m³ kort. Gjaldskrá er ákveðin af sveitarstjórn hverju sinni. Aukakort gilda þar til þau eru að fullu nýtt óháð ártali.

Eftirfarandi flokkar eru gjaldfrjálsir (ekki tekið af klippikorti):

  1. Spilliefni, rafeindabúnaður, raftæki, rafhlöður og ljósaperur.
  2. Bylgjupappi, pappír, umbúðaplast, glerkrukkur og rúlluplast.
  3. Hjólbarðar, kertaafgangar og fatnaður.
  4. Brotajárn og málmar.

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 15. desember 2022 staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1693/2021.

 

Búðardal, 10. janúar 2023.

 

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 6. febrúar 2023