Með bréfaskiptum í Brussel 29. og 30. desember 2020 var gengið frá samkomulagi milli Evrópusambandsins, Bretlands og Íslands um tímabundið óbreytt fyrirkomulag á miðlun persónuupplýsinga frá Íslandi til Bretlands.
Samkvæmt efni samkomulagsins skal því beitt til bráðabirgða frá 1. janúar 2021 að hámarki til sex mánaða. Tilkynnt verður síðar um gildistöku samkomulagsins.
Samkomulagið er aðgengilegt á heimasíðu utanríkisráðuneytisins þar sem unnt er að kynna sér efni þess.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 30. desember 2020.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
|