Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1274/2024

Nr. 1274/2024 31. október 2024

REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 200/2020 um innflutning hunda og katta.

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist við eftirfarandi málsgrein:

Matvælastofnun er heimilt að framkvæma eftirlit skv. 1. mgr. í einangrunarstöð, sem fengið hefur leyfi til rekstursins skv. reglugerð nr. 201/2020, innan þriggja daga frá komu dýrs til landsins. Matvæla­stofnun getur heimilað starfsmönnum einangrunarstöðvar þar sem á að einangra dýrið skv. 11. gr. reglugerðar þessarar að sækja dýrið á innflutningsstað. Þá skal viðkomandi einangrunarstöð sinna auðkennaskoðun á dýrinu og ganga úr skugga um að dýrið hafi innflutningsleyfi og öll tilskilin vottorð fylgi. Heimild þessi er bundin því skilyrði að fyrir hendi sé skriflegt samkomulag milli Matvæla­stofnunar og einangrunarstöðvarinnar um fyrirkomulagið og skyldur aðila. Matvælastofnun skal setja verklagsreglur um móttöku dýra og auðkennaskoðun á vegum einangrunarstöðva.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, og lögum nr. 55/2013 um velferð dýra.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 31. október 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 15. nóvember 2024