1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Rétt til að kalla sig hjúkrunarfræðing og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis. Ekki er heimilt að ráða aðra en hjúkrunarfræðinga til sjálfstæðra hjúkrunarstarfa.
2. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar:
Í stað orðsins „og“ á eftir orðunum hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands komi: og/eða.
3. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar:
Í stað orðsins „og“ á eftir orðunum hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands komi: og/eða.
4. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 25. október 2016.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Margrét Björnsdóttir.
|