1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðaukum IVA og IVB, með síðari breytingum, sbr. viðauka V, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
|
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollar |
Magntollar |
Tollskrárnr.: |
|
|
kg/stk. |
% |
kr./kg/stk. |
0208.9003 |
Rjúpur, frystar |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0208.9007 |
Beinlaust hreindýrakjöt, fryst |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
878 |
|
Hreindýrakjöt með beini, fryst |
|
|
|
|
0208.9008 |
Skrokkar og hálfir skrokkar |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0208.9009 |
Annað |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
878 |
0603.1202 |
Innflutningur á öðrum tíma (nellikur) |
01.05.-30.11.19 |
ótilgr. |
0 |
48 |
0603.1905 |
Innflutningur á öðrum tíma (lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og paradísarfuglablóm) |
01.05.-30.11.19 |
ótilgr. |
0 |
48 |
0701.9001 |
Bökunarkartöflur, 65 mm eða stærri |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0703.9001 |
Blaðlaukur |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0704.1000 |
Blómkál og hnappað spergilkál |
01.01.-30.06.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0704.9001 |
Hvítkál |
17.12.18-30.06.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0704.9002 |
Rauðkál |
17.12.18-30.06.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0704.9003 |
Kínakál |
01.01.-30.06.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0704.9004 |
Spergilkál (Brassica oleracea var. Ita.) |
01.01.-30.06.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0706.9002 |
Rauðrófur |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0709.4000 |
Selja, önnur en seljurót |
01.01.-30.06.19 |
ótilgr. |
0 |
0 |
0709.5100 |
Sveppir af ættinni Agaricus |
01.01.-31.12.19 |
ótilgr. |
0 |
80 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins og reglugerðar nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
5. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993 með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2019.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. desember 2018.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Elísabet Anna Jónsdóttir.
|