1. gr.
Innleiðing.
Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi liður:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1065 frá 27. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar sjálfvirka fullgildingu flugliðaskírteina í Sambandinu og þjálfun í flugtaki og lendingu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 217 frá 26. október 2018, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 8. nóvember 2018, bls. 414.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr., 3. mgr. 32. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 28. nóvember 2018.
F. h. r.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.
Jónas Birgir Jónasson.
|