Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 365/2019

Nr. 365/2019 4. apríl 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra, nr. 289/1995 með síðari breytingum.

1. gr.

23. gr. reglugerðarinnar verði svohljóðandi:

 

Miðlína (L1x-2x) er milli umferðar í gagnstæðar áttir. Veg utan þéttbýlis sem er með 5,5 m breiða akbraut eða breiðari skal marka með miðlínu. Óháð breidd akbrautar skal einnig marka akbraut með miðlínu þar sem vegsýn er takmörkuð, áður en komið er að gangbraut, stöðvunarlínu, umferðareyju, umferðarmerki á akbraut eða stað þar sem fyrirstaða er á akbraut. Miðlínur skulu vera 100-200 mm breiðar og eru þessar:


Óbrotin lína (hindrunarlína) (L11)
L11

Óbrotin lína (hindrunarlína) (L12)
L12
  1. Óbrotin lína (hindrunarlína) (L11) sem gefur til kynna að hættulegt sé að aka yfir hana og óheimilt nema brýna nauðsyn beri til. Miðlína milli umferðar í gagnstæðar áttir á vegi með fleiri en tvær akreinar skal vera tvöföld (L12).

Hálfbrotin lína (L21)
L21
  1. Hálfbrotin lína (L21) (línan þrisvar sinnum lengri en bilið) sem gefur til kynna að varhugavert sé að aka yfir hana og óheimilt nema með sérstakri varúð.

Hálfbrotin lína við hliðina á heilli línu (L22)
L22
  1. Hálfbrotin lína við hliðina á heilli línu (L22) sem gefur til kynna að varhugavert sé að aka yfir línurnar og óheimilt nema með sérstakri varúð og að hættulegt sé og óheimilt að aka yfir þær þeim megin frá sem heila línan er.

Fullbrotin lína (L23)
L23
  1. Fullbrotin lína (L23) (línan einn þriðji af bilinu) sem gefur til kynna að aka megi yfir hana, enda sé gætt fyllstu varúðar.

Fullbrotin lína við hliðina á heilli línu (L24)
L24
  1. Fullbrotin lína við hliðina á heilli línu (L24) sem gefur til kynna að aka megi yfir línurnar þeim megin frá sem brotna línan er, enda sé gætt fyllstu varúðar, og að hættulegt sé og óheimilt að aka yfir þær þeim megin frá sem heila línan er.

2. gr.

24. gr. reglugerðarinnar verði svohljóðandi:

  Deililína (L3x) er milli umferðar í sömu átt á akbraut, enda sé breidd hverrar reinar 2,75 m eða meiri fyrir vélknúin ökutæki en 1,25 m fyrir hjólareinar. Línur sem marka akreinar fyrir almenna umferð skulu vera 100-150 mm breiðar en þær sem marka aðreinar, fráreinar eða akreinar fyrir sérstaka umferð, t.d. strætis­vagna, skulu vera 200-300 mm breiðar. Deililínur eru þessar:

Óbrotin lína (hindrunarlína) (L31)
L31
  1. Óbrotin lína (hindrunarlína) (L31) sem gefur til kynna að hættu­legt sé að aka yfir hana og óheimilt nema brýna nauðsyn beri til.

Brotin lína (L32)
L32
  1. Brotin lína (L32) sem gefur til kynna að aka megi yfir hana, enda sé gætt fyllstu varúðar.

3. gr.

25. gr. reglugerðarinnar breytist þannig að brott falli orðið „vélknúnum“ í 1. málsl. a-liðar 1. mgr.

4. gr.

29. gr. reglugerðarinnar verði svohljóðandi:

Gangbraut yfir akbraut skal merkt með hvítum samhliða röndum langsum á vegi. Merkja skal ljósa­stýrða gönguþverun yfir akbraut með hvítum samhliða röndum langsum á vegi eða með tveimur óbrotnum línum þvert yfir akbrautina. Merkingu þessa má einnig nota þar sem hjól­reiða­stígur eða reiðvegur þverar veg.

5. gr.

32. gr. reglugerðarinnar verði svohljóðandi:

Bifreiðastæði eru merkt með hvítum 100 mm óbrotnum línum. Þegar ökutæki er lagt á merkt stæði skal það allt vera innan línanna. Bifreiðastæði ætluð sérstökum aðilum eru merkt með umferðar­merki. Jafnframt er heimilt að merkja stæðin með áletrun til samræmis við merkið.

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 79. og 84. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 4. apríl 2019.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. apríl 2019