1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra og sveitarstjórnar, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 1. júlí 2024:
- Allianz Ísland hf. söluumboð.
- BVS ehf.
- Carbfix ohf.
- Ergo ehf.
- Gagnaveita Reykjavíkur ehf.
- Hringur – eignarhaldsfélag ehf.
- Íslandsbanki hf.
- Íslandssjóðir hf.
- Kreditkort ehf.
- Miðengi ehf.
- ON Power ohf.
- Orka náttúrunnar ohf.
- Þróunarsjóðurinn Langbrók.
2. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþágur eftirtalinna lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott:
- Borgun hf.
- D-1 ehf.
- EFF 2 ehf.
- Fastengi ehf.
- Frakt flutningsmiðlun ehf.
- Geysir General Partner ehf.
- Geysir Green Investment Fund slhf.
- GP ÍSF ehf.
- ÍSB fasteignir ehf.
- ÍSF slhf.
- LT lóðir ehf.
- OIF ehf.
- RIVULUS ehf.
- Samskipti ehf.
- Smyrlaheiði ehf.
- SPW ehf.
3. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 13. ágúst 2021.
Katrín Jakobsdóttir.
|