Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 491/2021

Nr. 491/2021 16. apríl 2021

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands.

1. gr.

1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglnanna orðast svo: Til þess að eiga kost á rannsóknamisseri skal meðal­tal rannsóknastiga úr völdum flokkum matskerfis opinberra háskóla, sbr. töflu í lok 7. gr. reglna nr. 1300/2020 um framgang akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands, sbr. einnig lið 1, Rannsóknir, í 8. gr. sömu reglna, nema a.m.k. 10 stigum á ári.

 

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 16. apríl 2021.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 4. maí 2021