Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1151/2024

Nr. 1151/2024 27. september 2024

REGLUGERÐ
um (55.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/451 frá 5. febrúar 2024 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir nikótín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 164/2024, frá 5. júlí 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 19. september 2024, bls. 581.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/891 frá 22. mars 2024 um breytingu á II. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bífenasat í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2024, frá 5. júlí 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 19. september 2024, bls. 596.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1076 frá 15. apríl 2024 um breytingu á II. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bispýribak, metósúlam, órýsalín, oxasúlfúrón og tríasoxíð í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 166/2024, frá 5. júlí 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 19. september 2024, bls. 609.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1077 frá 15. apríl 2024 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarks­gildi leifa fyrir 2,4-DB, joðósúlfúrónmetýl, mesótríón og pýraflúfenetýl í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 166/2024, frá 5. júlí 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 19. september 2024, bls. 625.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1078 frá 15. apríl 2024 um breytingu á II. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asoxýstróbín, flóníkamíð, ísófetamíð, mefentríflúkónasól, metasa­klór, pýrimetaníl og kvarssand í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2024, frá 5. júlí 2024. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 19. september 2024, bls. 642.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 27. september 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 18. október 2024