Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 672/2019

Nr. 672/2019 16. júlí 2019

REGLUGERÐ
um bann við veiðum á sæbjúgum í Faxaflóa.

1. gr.

Frá og með 18. júlí 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði í Faxaflóa sem afmark­ast af eftirfarandi hnitum:

  1. 64°06,00´ N – 22°18,00´ V
  2. 64°06,00´ N – 22°49,20´ V
  3. 64°21,00´ N – 22°49,20´ V
  4. 64°21,00´ N – 22°18,00´ V
  5. 64°06,60´ N – 22°18,00´ V 

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019. 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. júlí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Erna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2019