1. gr.
Markmið.
Markmið með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1142 er að skilgreina kröfur um skírteini fyrir viðhaldsvotta sem sinna vottun á ELA1 flugvélum og á öðrum loftförum en þyrlum og flugvélum, þar sem gildandi kröfur miðast við viðhald á flóknum loftförum og eru óþarflega íþyngjandi fyrir þessi loftför.
2. gr.
Innleiðing.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist stafliður d sem orðast svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1142 frá 14. ágúst 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar innleiðingu á tilteknum flokkum skírteina flugvéltækna, breytingu á ferlinu við viðurkenningu íhluta frá utanaðkomandi birgjum og breytingu á heimildum viðhaldskennslufyrirtækja, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 193/2019 frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 99-154.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. nóvember 2019.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
|