Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 666/2013

Nr. 666/2013 11. júlí 2013
REGLUGERÐ
um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda og sérstaka þorskígildisstuðla fiskveiðiárið 2013/2014.

I. KAFLI

Fjárhæð, álagning og innheimta veiðigjalda.

1. gr.

Fiskistofa leggur á almennt og sérstakt veiðigjald samkvæmt reglugerð þessari. Eigandi skips við álagningu veiðigjalda er ábyrgur fyrir greiðslu þeirra. Fiskistofa annast inn­heimtu veiðigjalda.

2. gr.

Fjárhæð veiðigjalda.

Á fiskveiðiárinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014 skulu gjaldskyldir aðilar samkvæmt lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld, með síðari breytingum, greiða veiðigjöld á hvert sér­stakt þorskígildiskíló, sem hér segir:

  1. 9,50 kr. í almennt veiðigjald fyrir hvert sérstakt þorskígildiskíló. Almennt veiði­gjald á hvert skip skal þó aldrei vera lægra en 5.000 kr.
  2. 38,25 kr. í sérstakt veiðigjald á hvert sérstakt þorskígildiskíló í uppsjávarveiðum og 7,38 kr. á hvert sérstakt þorskígildiskíló í botnfiskveiðum eins og þessar veiðar eru skilgreindar í 3. gr. laga nr. 74/2012 um veiðigjöld.

3. gr.

Lækkun sérstaks veiðigjalds.

Álagning sérstaks veiðigjalds á hvern gjaldskyldan aðila samkvæmt reglugerð þessari skal vera þannig á fiskveiðiárinu 2013 til 2014:

  1. Af fyrstu 30.000 sérstöku þorskígildiskílóum hvers gjaldskylds aðila greiðist ekkert sérstakt veiðigjald.
  2. Af næstu 70.000 sérstöku þorskígildiskílóum hvers gjaldskylds aðila greiðist hálft sérstakt veiðigjald.
  3. Af sérstökum þorskígildiskílóum hvers gjaldskylds aðila umfram 100.000 greiðist fullt sérstakt veiðigjald.

Við álagningu sérstaks veiðigjalds skal tekið tillit til réttar til lækkunar gjaldsins sam­kvæmt reglugerð nr. 838/2012 um tímabundna lækkun sérstaks veiðigjalds sam­kvæmt ákvæði II til bráðabirgða við lög um veiðigjöld, nr. 74/2012, með síðari breyt­ingum.

4. gr.

Álagning og innheimta veiðigjalda.

Veiðigjöld skulu lögð á við úthlutun aflamarks sem úthlutað er á grundvelli afla­hlutdeildar. Veiðigjöld á landaðan afla einstakra tegunda, sem ekki eru háðar afla­marki, skulu lögð á miðað við 31. ágúst 2014.

Veiðigjöld vegna aflamarks sem úthlutað er 1. september fellur í gjalddaga með fjórum jöfnum greiðslum 1. október 2013, 1. janúar 2014, 1. apríl 2014 og 1. júlí 2014. Taki úthlutun aflamarks gildi eftir þann tíma falla gjöldin í gjalddaga við útgáfu tilkynningar um úthlutað aflamark. Þó skulu gjalddagar vegna úthlutaðs aflamarks í eftirtöldum tegundum vera sem hér segir: 1. apríl 2014 vegna loðnu en 1. júlí 2014 vegna norsk-íslenskrar síldar, kolmunna, úthafskarfa, Barentshafsþorsks, Flæmingjarækju og humars. Gjalddagi veiðigjalda á landaðan afla einstakra tegunda sem ekki eru háðar aflamarki og á afla sem veiddur er við strandveiðar er 1. október 2014. Gjaldið skal miða við landaðan afla á tímbilinu 1. ágúst 2013 til 31. júlí 2014 og afla sem fenginn er við strandveiðar á tímabilinu 1. maí 2014 til 31. ágúst 2014. Um nánari framkvæmd við innheimtu veiðigjalda fer skv. 14. gr. laga nr. 74/2012 um veiðigjöld, með síðari breytingum.

II. KAFLI

Sérstakir þorskígildisstuðlar til útreiknings veiðigjalda.

5. gr.

Sérstakir þorskígildisstuðlar til útreiknings veiðigjalda fyrir fiskveiðiárið 1. september 2013 til 31. ágúst 2014 eru sem hér greinir:

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Þorskur

1,00

Humar (slitinn)

6,66

Spærlingur

0,12

Ýsa

1,17

Innfjarðarækja

0,87

Trjónukrabbi

0,04

Ufsi

0,66

Úthafsrækja

1,09

Geirnyt

0,11

Gullkarfi

0,79

Litli karfi

0,25

Djúpkarfi

1,21

Langa

0,75

Lýsa

0,47

Beitukóngur

0,48

Keila

0,54

Blálanga

0,67

Kræklingur

0,50

Steinbítur

0,97

Slétti langhali

0,65

Blágóma

0,02

Skötuselur

2,04

Tindaskata

0,13

Búrfiskur

1,99

Grálúða

1,80

Hlýri

1,21

Snarphali

0,26

Skarkoli

0,71

Skata

0,50

Náskata

0,36

Sólkoli

1,75

Háfur

0,63

Sandhverfa

4,04

Langlúra

0,68

Hákarl

0,36

Urrari

0,13

Sandkoli

0,29

Hámeri

1,71

Stinglax

0,20

Skrápflúra

0,18

Gulllax

0,34

Ígulker

0,77

Smokkfiskur

0,09

Lúða

3,47

Sæbjúga

0,20

Síld

0,21

Öfugkjafta

0,44

Rauðmagi

0,47

Loðna

0,13

Gulldepla

0,12

Grásleppa

0,79

Stóra brosma

0,27

Vogmær

0,07

Hvítskata

0,32

Túnfiskur

11,45

Gjölnir

0,20

Kúfskel

0,14

Sérstakir þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2014 til útreiknings veiðigjalda eru sem hér greinir:

Tegund

Stuðlar

Norsk-íslensk síld

0,21

Norður-Íshafsþorskur

1,00

Kolmunni

0,10

Úthafskarfi

0,79

Rækja á Flæmingjagrunni

1,30

Rækja á Dohrnbanka

2,22

Makríll

0,23

6. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 16. gr. og ákvæði til bráðabirgða I, í lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006 um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. júlí 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 12. júlí 2013