1. gr.
Þóknun fyrir birtingu.
Fyrir birtingu á hvers konar tilkynningu, vegna hvers manns sem hún er birt fyrir, skal greiða stefnuvotti 2.650 kr. þóknun.
2. gr.
Aksturskostnaður.
Stefnuvottur skal fá greiddan aksturskostnað, 1.970 kr., vegna hverrar birtingar. Ef birtar eru samtímis fleiri en ein tilkynning á hendur sama manni eða tveimur einstaklingum á sama heimili, skal þó aðeins greiða aksturskostnað fyrir eina birtingu. Fari stefnuvottur á fleiri en einn stað í sömu ferð skal aksturskostnaður skiptast á milli jafnmargra og viðkomustaðirnir eru.
Sé um lengri veg að fara en 30 kílómetra skal aksturskostnaður ákveðinn í samræmi við akstursgjald sem ákveðið hefur verið fyrir ríkisstarfsmenn.
3. gr.
Póstkostnaður.
Póstkostnaður vegna birtingar skal greiddur af þeim sem æskir birtingarinnar.
4. gr.
Ómaksþóknun.
Endursendi stefnuvottur tilkynningu án þess að birting hafi tekist, skal hann fá aksturskostnað greiddan að fullu, en að auki skal hann fá greidda ómaksþóknun og skal hún vera að fjárhæð kr. 1.750.
5. gr.
Gildistaka.
Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 81. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir stefnuvotta nr. 360/2017.
Dómsmálaráðuneytinu, 14. ágúst 2020.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
|