1. gr.
Við skráningu kattar skal greiða skráningargjald kr. 3.481.
2. gr.
Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna kattar, kr. 6.957. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar og eftirlits. Ef staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd er framvísað lækkar gjaldið um 50%.
3. gr.
Af köttum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 12. gr. samþykktar um kattahald í Dalvíkurbyggð nr. 1361/2019 skal greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef köttur er ekki örmerktur samkvæmt 8. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.
4. gr.
Við afhendingu handsamaðs kattar ber að innheimta kr. 6.957 vegna handsömunar og kr. 1.099 fyrir hvern dag sem köttur er vistaður í kattageymslu fyrir fóður og vistun. Gjald fyrir örmerkingu kattar fer eftir gjaldskrá viðkomandi dýralæknis hverju sinni.
5. gr.
Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. kafla XVI, auk reglugerðar nr. 941/2002 um hollustuhætti og samþykkt um kattahald í Dalvíkurbyggð nr. 1361/2019, öðlast gildi við birtingu.
6. gr.
Gjaldskráin uppfærðist haustið 2023 og hækkaði um 4,9% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.
Samþykkt í umhverfis- og dreifbýlisráði Dalvíkurbyggðar 20. október 2023 og í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 28. nóvember 2023.
Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2024 og fellur þá gjaldskrá sama efnis nr. 1583/2022 úr gildi.
Dalvíkurbyggð, 12. desember 2023.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.
|