Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 611/2021

Nr. 611/2021 25. maí 2021

AUGLÝSING
um afléttingu tímabundinna varnaðaraðgerða til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

1. gr.

Með vísan til þess að alvarleg afbrigði af fuglaflensuveiru hafa ekki greinst á Íslandi hefur ráðherra, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, ákveðið að fella úr gildi auglýsingu nr. 270/2021, um tíma­bundnar varnaðaraðgerir til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með vísan til 8. gr. laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim ásamt síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. maí 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 28. maí 2021