Dómsmálaráðherra hefur tekið ákvörðun um að framlengja ákvörðun um beitingu 44. gr. laga um útlendinga um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu til og með 2. mars 2027. Upphaflega var ákvörðun um beitingu ákvæðisins tekin þann 4. mars 2022 og gilti til eins árs. Heimilt var samkvæmt ákvæðinu að endurnýja eða framlengja dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins í allt að þrjú ár frá því umsækjandi fékk fyrst leyfi. Dómsmálaráðherra framlengdi gildistíma ákvæðisins í tvígang, í eitt ár í senn, fyrst 3. mars 2023 og aftur 2. mars 2024. Ákvarðanir um framlengingu voru teknar að undangengnu samráði, innan lands sem utan, þar á meðal við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.
Hinn 18. nóvember 2024 samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Lagabreytingin fólst í því að hámarkstími dvalarleyfa, sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta, var lengdur úr þremur árum í fimm. Í kjölfar lagabreytinganna hefur dómsmálaráðherra tekið ákvörðun um að framlengja gildistímann um tvö ár til viðbótar, eða til og með 2. mars 2027. Eins og áður mun Útlendingastofnun endurnýja dvalarleyfin um eitt ár í seinn skv. 74. gr. laga um útlendinga og dvalarleyfin munu áfram öll hafa sama gildistíma.
Leiðbeiningar ráðuneytisins, dags. 11. mars 2022 ásamt uppfærðum leiðbeiningum birtar 2. janúar 2025 gilda um umsóknir á grundvelli 44. gr. laga um útlendinga og eru birtar sem fylgiskjöl með auglýsingu þessari.
Dómsmálaráðuneytinu, 2. janúar 2025.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|