Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 887/2024

Nr. 887/2024 9. júlí 2024

GJALDSKRÁ
Akraneskaupstaðar fyrir skipulags- og byggingarmál og tengd þjónustugjöld.

1. gr. 

Gjöld.

Fyrir útgáfu leyfa og vottorða, úttektir, yfirferð gagna, auglýsingar, kynningar og aðra umsýslu og þjónustu sem Akraneskaupstaður veitir vegna byggingar- og leyfisskyldra framkvæmda, deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, innheimtir Akraneskaupstaður í umboði bæjarstjórnar gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

2. gr. 

Byggingarleyfis- og stöðuleyfisgjöld.

Fyrir neðangreindar úttektir og með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 skal innheimta gjöld sem hér segir: 

2.1. Byggingarleyfisgjald. kr.  
  2.1.1 Íbúðarhúsnæði, gjald pr. m² 720
  2.1.2 Annað húsnæði s.s. sólstofur, garðhús og gripahús, pr. m² 500
  2.1.3 Stofnanir og atvinnuhúsnæði, pr. m² 400
  2.1.4 Niðurrif 50.000
  2.1.5 Breytingar á innra skipulagi, minni háttar 20.000
  2.1.6 Breytingar á innra skipulagi, meiri háttar 40.000
2.2. Gjöld vegna stöðuleyfa.  
  2.2.1 Fyrir gáma, báta, skúra og dúkskemmur, veitt til eins árs 50.000
  2.2.2 Fyrir torgsöluhús, söluvagna, -skúra og samkomutjöld, fyrir 0-3 mánuði 50.000
  2.2.3 Fyrir torgsöluhús, söluvagna, -skúra og samkomutjöld, 1-4 dagar 20.000
  2.2.4 Fyrir auglýsingaskilti, veitt til eins árs 50.000
  2.2.5 Fyrir sumarhús í smíðum ætluð til flutnings, veitt til eins árs 50.000

Varðandi stöðuleyfi vísast í gr. 2.6.1. Umsókn um stöðuleyfi og 2.6.2. Heimild leyfisveitanda til að fjarlægja lausafjármuni, í byggingarreglugerð nr. 160/2010.

Innifalið í ofangreindum gjöldum er ein yfirferð aðal- og séruppdrátta, fokheldisvottorð og vottorð vegna öryggis- og lokaúttektar, eitt af hverri tegund. Heimild er til að innheimta kostnað vegna yfirferðar séruppdrátta þegar um er að ræða stærri byggingar eða flókin mannvirki.

Kostnaður vegna útsetningar á greftri/mannvirki og lóð, úttekta, förgunar á jarðvegi auk uppgraftrar og fyllingar vegna gatnagerðar er innheimtur sérstaklega. 

 

3. gr. 

Gjöld fyrir skipulagsvinnu.

Vegna grenndarkynninga skv. 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, framkvæmdaleyfa skv. 13. og 14. gr. og vegna deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum skv. 36. og 38. gr. sömu laga, skal innheimta gjöld sem hér segir: 

3.1. Aðalskipulagsbreytingar. kr.  
  3.1.1 Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 36. gr.  
    skipulagslaga nr. 123/2010 200.000
  3.1.2 Umsýslu- og auglýsingakostnaður 230.000
  3.1.3 Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 36. gr. 120.000
  3.1.4 Umsýslu- og auglýsingakostnaður 120.000
3.2. Deiliskipulagsbreytingar.  
  3.2.1 Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. 250.000
  3.2.2 Breyting á deiliskipulagi, sbr. 1. mgr. 43. gr. 200.000
  3.2.3 Umsýslu- og auglýsingakostnaður,    
    sbr. 2. mgr. 38. gr. og 1. mgr. 43. gr. 230.000
  3.2.4 Breyting á deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. 100.000
  3.2.5 Grenndarkynning, sbr. 1. mgr. 44. gr. 100.000
  3.2.6 Breyting á deiliskipulagi sbr. 3. mgr. 44. gr. 100.000
3.3. Framkvæmdaleyfi.  
  3.3.1 Framkvæmdir skv. 13. gr. skipulagslaga 90.000
  3.3.2 Framkvæmdir skv. 13. gr. skipulagslaga sem falla undir flokk C  
    í lögum um mat á umhverfisáhrifum 120.000
  3.3.3 Framkvæmdir skv. 14. gr. skipulagslaga 150.000
  3.3.4 Umsýslu- og auglýsingakostnaður   50.000
  3.3.5 Eftirlit umfram eina ferð sem innifalin er í leyfisgjaldi   20.000
3.4. Afnotaleyfi.  
  3.4.1 Afnotaleyfi af bæjarlandi, 1 - 6 dagar 20.000
  3.4.2 Afnotaleyfi af bæjarlandi, umfram 6 daga 50.000
  3.4.3 Viðbótardagsleiga vegna daga umfram umsaminn tíma 4.000
  3.4.4 Viðbótardagsleiga með 50% hækkun 6.000

 Varðandi afnotaleyfi vísast í reglur fyrir tímabundin afnot af bæjarlandi.

 

4. gr. 

Gjöld vegna jarðefna.

4.1. Jarðefni kr.  
  4.1.1 Losunargjald, almennt, hvert skipti 8.500
  4.1.2 Losunargjald, minni ökutæki, hvert skipti 5.500
  4.1.3  Afgreiðslugjald aðgangslykils  8.000
  4.1.4  Uppgröfur/fylling í lóð pr. m³ 4.000

Losunargjald á við losun á móttökusvæði jarðefna í Grjótkelduflóa. Minni ökutæki hafa skráða flutningsgetu undir 12 tonnum.

Uppgröftur/fylling í lóð getur komið til vegna vinnu við gatnagerð til þess að koma í veg fyrir hrun jarðvegs vegna vinnu í lóð.  Einnig getur þetta verið vegna stígagerðar, vinnu við gangstéttir o.þ.h.

  

5. gr. 

Úttektargjöld. 

  5.1.1 Úttekt vegna byggingarstjóraskipta 30.000 kr.
  5.1.2 Einbýlishús 220.000 kr.
  5.1.3 Parhús, tvíbýlishús, pr. íbúð   180.000 kr.
  5.1.4 Raðhús, pr. íbúð 150.000 kr.
  5.1.5 Fjölbýlishús, pr. byggingaráfanga  400.000 kr.
  5.1.6 Fjölbýlishús, viðbót pr. íbúð 20.000 kr.
  5.1.7 Minni byggingar, gripahús o.þ.h. 55.000 kr.
  5.1.8 Aukaúttekt - stöðu-, áfanga-, öryggis-, lokaúttekt (pr. úttekt) 30.000 kr.
  5.1.9 Úttekt vegna leiguhúsnæðis - íbúðarhúsnæði 30.000 kr.
  5.1.10 Úttekt vegna leiguhúsnæðis - atvinnuhúsnæði    45.000 kr.
  5.1.11 Úttekt vegna rekstrarleyfa    30.000 kr.
  5.1.12 Gjald fyrir hvert útkall, ef verkið er ekki úttektarhæft    25.000 kr.

  

5.2. Gjöld vegna mælinga.   
  5.2.1 Útsetningar fyrir greftri, mannvirki og lóð (3 mælingar) 250.000 kr.
  5.2.2 Útsetning lóðamarka (ein mæling) 70.000 kr.

Innifalið í liðum 5.1.2 - 5.1.7 er ein fokheldis-, áfanga-, öryggis- og lokaúttekt.

 

6. gr. 

Gjöld fyrir þjónustu, afgreiðslu og vottorð.

6.1. Gjöld fyrir þjónustu og vottorð. kr.  
  6.1.1 Afgreiðslugjald (fast gjald)    25.000
  6.1.2 Auka gjald fyrir hverja umfjöllun umfram tvær    15.000
  6.1.3 Endurnýjuð byggingarheimild/-leyfi - gögn óbreytt    60.000
  6.1.4 Breytingar á uppdráttum og lóðar- og mæliblöðum  100.000
  6.1.5 Vottorð vegna fokheldis-, stöðu-, öryggis- og lokaúttektar    50.000
  6.1.6 Gjald vegna stofnunar landeigna eða fasteigna (pr. lóð/eign)   36.000
  6.1.7 Samrunaskjalagerð   30.000
  6.1.8 Nafnabreyting, lands eða lóðar   20.000
  6.1.9 Tímagjald starfsmanns á skipulags- og umhverfissviði    20.000
  6.1.10 Lóðarleigusamningar    75.000
  6.1.11 Umsýslugjald vegna lóðarúthlutunar (1/4 af umsóknargjaldi)    50.000
6.2. Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga.  
  6.2.1 Eignaskiptayfirlýsingar 2-5 eignir 42.000
  6.2.2 6-15 eignir 56.000
  6.2.3 16-50 eignir 70.000
  6.2.4 51 eign og fleiri 85.000
  6.2.5 Aukagjald fyrir hverja yfirferð eignaskiptayfirlýsingar umfram tvær 12.000

 

7. gr. 

Bílastæðagjald.

7.1. Bílastæðagjald skv. 19. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. kr.  
  7.1.1 Bílastæðagjald. 600.000

 

8. gr. 

Gjöld vegna yfirferða uppdrátta.

8.1. Yfirferð aðal- og séruppdrátta kr.   
    (burðarþols-, lagna- og séruppdrátta aðalhönnuða).  
  8.1.1 Einbýlis-, par-, rað- og fjölbýlishús allt að 6 íbúðir 100.000
  8.1.2 Fjölbýlishús 7-19 íbúðir 120.000
  8.1.3 Fjölbýlishús, 20 íbúðir og fleiri 140.000
  8.1.4 Frístundahús á einni hæð 100.000
  8.1.5 Annað húsnæði, þ.m.t. atvinnu- og gripahús 140.000
  8.1.6 Byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofur o.fl. 40.000
  8.1.7 Breyting á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis o.fl. 60.000
  8.1.8 Breyting á innra skipulagi sérbýlis, klæðningu húss, svalaskýlis, lóð o.fl. 40.000
  8.1.9 Aukagjald fyrir hverja umfjöllun umfram tvær 20.000

 

9. gr. 

Trygging fyrir gjöldum.

Álögðum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari fylgir lögveð í fasteign þeirri sem gjöldin eru lögð á og ganga ásamt vöxtum og kostnaði fyrir öllum veðkröfum sem á eigninni hvíla og tekur það einnig til vátryggingarfjár hennar, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

 

10. gr. 

Gildistaka og verðbreytingar. 

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í janúar 2023, 112,7 stig, og taka breyt­ingum mánaðarlega í samræmi við breytingar á umræddri vísitölu.

Gjaldskrá þessi sem sett er með heimild í lögum um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslögum nr. 123/2010 og öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 361/2023. 

Samþykkt í skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar 3. júní 2024.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar, 9. júlí 2024.

 

 

Haraldur Benediktsson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 23. júlí 2024