1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
2. gr.
Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.
Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.
3. gr.
Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1285 frá 30. júlí 2019 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní 2019 til 29. september 2019 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.
Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016, sbr. 1. gr. laga nr. 26/2019, vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 202, þann 31. júlí 2019, bls. 1-80:
https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=uriserv:OJ.L_.2019.202.01.0001.01.ENG.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016, sbr. 1. gr. laga nr. 26/2019. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Fjármálaeftirlitinu, 22. ágúst 2019.
Unnur Gunnarsdóttir.
|