Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1115/2024

Nr. 1115/2024 23. september 2024

REGLUR
um breytingu á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Múlaþingi, nr. 175/2023.

1. gr.

1. mgr. 6. gr. reglnanna breytist og verður svohljóðandi:

Fjárhæðir við útreikning.

Sérstakur húsnæðisstuðningur er reiknaður sem ákveðið hlutfall af húsnæðisbótum þannig að fyrir hverjar kr. 1.000 fær leigjandi að hámarki kr. 900 í sérstakan húsnæðisstuðning. Þó geta húsnæðis­bætur og sérstakur húsnæðisstuðningur aldrei numið hærri fjárhæð en samtals kr. 100.000 á mánuði né farið yfir 75% af leigufjárhæð.

Sérstökum húsnæðisstuðningi verður ekki beitt til að greiða niður húsaleigu umfram það viðmið að leigjandi beri kr. 50.000 í kostnað af húsaleigu.

 

2. gr.

Reglur þessar, sem settar eru með stoð í 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og byggjast á meginreglum þeirra laga, sbr. einkum 1. gr. og IV. kafla, öðlast þegar gildi.

Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 11. september 2024.

 

Egilsstöðum, 23. september 2024.

 

Björn Ingimarsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 7. október 2024