1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 194/2024, frá 23. september 2024, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1438 frá 10. júlí 2023 um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB að því er varðar aðferðarlýsingar vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í landbúnaði. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 14. nóvember 2024, bls. 506.
2. gr.
Í stað 9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, kemur nýr 9. viðauki sem birtur er með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Iðunn María Guðjónsdóttir.
VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)
|