1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela nr. 380/2018:
|
1.3 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/901 frá 25. júní 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.3. |
|
1.4 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1656 frá 6. nóvember 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.4. |
|
2.2 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/899 frá 25. júní 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.2. |
|
2.3 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/1653 frá 6. nóvember 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.3. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 21. júní 2019.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sturla Sigurjónsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|