1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, töluliður 10, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2070 frá 18. ágúst 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Kamerún og Víetnam í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, 16. nóvember 2023, bls. 182.
2. gr.
Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal við reglugerð þessa þannig breyttur.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 22. nóvember 2023.
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Haukur Guðmundsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|