FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, er störfum þannig skipt með ráðherrum:
1. gr.
Forsætisráðuneyti.
Katrín Jakobsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið forsætisráðherra.
2. gr.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Kristján Þór Júlíusson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skv. 1., 5. og 6. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið sjávarútvegs- og landbúnaðar-ráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skv. 2.–4. tölul. og 7. og 8. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
3. gr.
Dómsmálaráðuneyti.
Sigríður Á. Andersen fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið dómsmálaráðherra.
4. gr.
Félagsmálaráðuneyti.
Ásmundur Einar Daðason fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félagsmálaráðuneyti skv. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félags- og barnamálaráðherra.
5. gr.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.
6. gr.
Heilbrigðisráðuneyti.
Svandís Svavarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið heilbrigðisráðherra.
7. gr.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og menningarmálaráðherra.
8. gr.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.
Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
9. gr.
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis- og auðlindaráðherra.
10. gr.
Utanríkisráðuneyti.
Guðlaugur Þór Þórðarson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið utanríkisráðherra.
11. gr.
Úrskurður þessi öðlast gildi 1. janúar 2019. Með úrskurði þessum fellur úr gildi úrskurður nr. 85/2017, um skiptingu starfa ráðherra.
Gjört í Reykjavík, 7. desember 2018.
Guðni Th. Jóhannesson. (L. S.)
Katrín Jakobsdóttir.
|