1. gr.
Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, ö, sem orðast svo:
|
ö. |
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2215 frá 30. nóvember 2017, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2018 frá 27. apríl 2018. |
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2215 frá 30. nóvember 2017 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2018 frá 27. apríl 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 17. maí 2018, bls. 225.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 31. maí 2018.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
|