1. gr. Svohljóðandi ný mgr. komi á eftir 3. mgr. 4. gr.: Heimilt er auk þess að semja svo um í fjármálagerningum, sem skráðir eru á skipulegum verðbréfamarkaði sbr. lög nr. 110/2007 um kauphallir, að á útborgunardegi láns og greiðsludegi afborgana og vaxta miðist verðbætur innan mánaðar við daglega línulega breytingu á vísitölu neysluverðs, þ.e. milli gildis hennar á fyrsta degi mánaðar og gildis hennar á fyrsta degi næsta mánaðar þar á eftir. 2. gr. Reglur þessar eru settar með tilvísun til ákvæða VI. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu og öðlast þegar gildi. Reykjavík, 29. mars 2010. | Seðlabanki Íslands, | | Már Guðmundsson seðlabankastjóri. | Sigríður Logadóttir aðallögfræðingur. |
|