1. gr.
Af hundum og köttum í Fjallabyggð skal Fjallabyggð innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar nr. 631/2012 um hundahald í Fjallabyggð og samþykktar nr. 636/2012 um kattahald í Fjallabyggð.
2. gr.
Hundaleyfisgjald greiðist árlega 15.200 kr. á hvern hund.
Kattaleyfisgjald greiðist árlega 13.300 kr. á hvern kött.
Innifalinn í leyfisgjaldi er sá kostnaður sem verður vegna umfjöllunar, umsýslu, auglýsinga, skráningar, heilbrigðisskoðunar dýralæknis, ormahreinsunar og aflesara. Allur annar kostnaður sem til fellur vegna hunda og katta, skal greiddur af leyfishafa.
Um vexti af vangreiddum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari gilda almennar reglur. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
3. gr.
Handsömunargjald, samkvæmt 11. gr. samþykktar nr. 631/2012 um hundahald í Fjallabyggð og 14. gr. samþykktar nr. 636/2012 um kattahald í Fjallabyggð, skal vera 7.800 kr. Ef vista þarf hund eða kött yfir nótt, skal greiða vörslugjald að fjárhæð 1.270 kr. fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhringinn. Að auki skal greiða allan útlagðan kostnað Fjallabyggðar vegna hunds eða kattar.
Eigandi hunds eða kattar getur fengið hann afhentan, að aflokinni skráningu og gegn framvísun á staðfestingu fyrir greiðslu handsömunargjalds auk annars áfallins kostnaðar vegna brotsins.
4. gr.
Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og öðlast hún gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1606/2021 fyrir hunda- og kattahald í Fjallabyggð.
Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 14. desember 2023.
Fjallabyggð, 15. desember 2023.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.
|