1. gr.
Gildissvið.
Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Múlaþings, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja í eigu sveitarfélagsins skal greiða vatnsgjald árlega.
2. gr.
Vatnsgjald.
Vatnsgjald samanstendur af fastagjaldi fyrir hverja matseiningu og gjaldi fyrir hvern fermetra samkvæmt fasteignamati. Bílskúrar og sambærilegt húsnæði er undanþegið fastagjaldi. Vatnsgjald fer aldrei yfir 0,5% af fasteignamati.
3. gr.
Fjárhæð vatnsgjalds.
Af öllum fasteignum, sem eru gjaldskyldar skal greiða vatnsgjald, 305 kr. á fermetra skv. fasteignamati og fast gjald 10.721 kr. á matseiningu. Árlegt vatnsgjald af sumarhúsum/frístundahúsum skal þó að lágmarki vera 36.225 kr.
4. gr.
Gjalddagar vatnsgjalds.
Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn Múlaþings ákveður fyrir fasteignagjöld og skal innheimtu vatnsgjalds hagað á sama hátt og innheimtu fasteignagjalda.
5. gr.
Notkunargjald.
Auk vatnsgjalds skulu fyrirtæki og aðrir, er nota kalt vatn til annars en heimilisþarfa, greiða notkunargjald. Notkunargjald skal innheimt samkvæmt rúmmetramæli sem HEF leggur til og eru gjalddagar 5. hvers mánaðar. Notkunargjald vatns um mæli í fastri leigu kaupanda skal vera 43 kr. pr. rúmmetra og frá Urriðavatnsveitu 32 kr. pr. rúmmetra.
Notkunargjald í lausasölu og til hafna fyrir vatn til skipa við bryggju er 362 kr. pr. rúmmetra.
6. gr.
Mælaleiga.
Leiga rúmmetramæla er eftirfarandi:
Stærð mælis (mm) |
15 |
20 |
25 |
32 |
50 |
80 |
≥ 100 |
Mælaleiga pr. dag (kr.) |
50 |
52 |
68 |
76 |
113 |
292 |
308 |
7. gr.
Heimæðar.
Gjöld fyrir heimæðar miðast við að ídráttarrör fyrir heimlagnir hafi verið lagt frá tengistað HEF við lóðarmörk, að tengistað í inntaksrými mannvirkis og að lega og frágangur ídráttarrörs hafi verið tekin út og samþykkt af HEF:
Þvermál inntaks: |
≤ 32 mm |
40 mm |
50 mm |
63 mm |
75 mm |
Heimæðargjald – þéttbýli* kr. * Skipulagt þéttbýli í Múlaþingi |
343.400 |
490.400 |
726.200 |
1.066.400 |
1.413.100 |
Heimæðargjald – dreifbýli kr. |
683.000 |
Um verð sverari heimæða skal samið sérstaklega. |
Sé um óskipulagt svæði að ræða eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds, eða gera honum að greiða heimæðina samkvæmt kostnaði. Þetta á einnig við ef nauðsynlegt reynist að fleyga eða sprengja klöpp eða frost er í jörðu.
8. gr.
Verðlagning.
Stjórn HEF tekur ákvörðun um vatnsgjald samkvæmt 3. gr. í lok hvers árs, fyrir gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. Önnur gjöld í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu og breytast samkvæmt henni 1. janúar ár hvert. Gjöld vatnsveitunnar bera ekki virðisaukaskatt.
9. gr.
Gildistaka.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af stjórn HEF veitna ehf. 12. nóvember 2024 samkvæmt 10. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, staðfestist hér með til að taka gildi 1. janúar 2025 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá HEF veitna ehf. - vatnsveitu Múlaþings nr. 1650/2023.
Múlaþingi, 13. desember 2024.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri.
|