1. gr.
1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/478 frá 24. mars 2022 um að viðhalda verndarráðstöfunum varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/360 frá 24. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/478 að því er varðar framlengingu á gildistíma verndarráðstafana varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð sem nefnd er í 2. tl. 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 9/2024.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 29. janúar 2024.
Katrín Jakobsdóttir.
|