Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 973/2024

Nr. 973/2024 16. ágúst 2024

REGLUGERÐ
um (34.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist fjórir nýir töluliðir, 102., 103., 104. og 105. tölul., svohljóð­andi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1219 frá 23. apríl 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði þeirra eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1621 frá 31. maí 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Ástralíu og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2028 frá 22. júlí 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2111 frá 26. júlí 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðirnar sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 36/2024.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 16. ágúst 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. ágúst 2024