Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2018 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal vera sem hér segir:
- Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.
- Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2018 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 5,7% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2018. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
- Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2018, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.
Reykjavík, 12. desember 2018.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
|